Aðalvalmynd

Nýjar myndir

16. desember 2009 klukkan 12:42
Nýjar myndir frá ágúst, verði ykkur að góðu:)

Árni Hrafn eins árs

10. ágúst 2009 klukkan 19:17

Færsla júlí mánaðar

27. júlí 2009 klukkan 10:38
Lilli kallinn er bara farinn að laba. Hann tók fyrstu skrefin síðasta miðvikudag, daginn sem pabbi, Ragga og Sverrir fóru heim, og nú gengur hana stofuna endana á milli. Duglegur strákur;)

Áróra fór ein til Íslands og átti frábæra daga þar, hjá öllu okkar frábæra fólki. Meðal þess sem hún gerði var að ganga Esjuna, fara óteljandi oft í sund, fara í sumarbústað, tína álfa i box, sjósund, grillpartý, kringluferðir og margt fleira, Hún var alveg ótrúlega sátt og við auðvitað líka og þökkum öllum vel fyir hana;;) Hún kom svo heim með pabba, Röggu og Sverri svo voru hjá okkur 5 yndislega daga.

Hallur var í fríi þegar þau komu í heimsókn en hann er eitthvað búinn að vera vinna á næturvöktun og skúarar Hatting samviskusamlega um helgar.

Veðrið er ekkert búið að vera neitt frábært síðustu daga, og tengdó sem koma annað kvöld fá sko að finna fyrir því þar sem það spáir rigniongu alla þeirra daga hér, fra´bært:s

En krumminn er alltaf sætastur orðinn 9,4 kg og 74,5 cm. Hann fékk eyrnabólgu um daginn aftur og er búinn að vera á pensilíni, mér finnst hann ekki alveg orðinn góður þannig að við kíkjum til læknis aftur í vikunni.

Hann talar rosa mikið í síma, finnst það alveg rosa sport. Hann segir mamma, og kallar pabba sinn nuna bara mahh, er alveg hættur að segja pabbi, hann kallar systur sína heldur ekki neitt, en hann var byrjaður að segja Áa þegar hún fór  þannig að vonandi kemur það aftur. Annars hristir hann hausinn og segir stundum neihh. Kinkar kolli, segir takk og namm.

Hann er mikill knúsukall og gjörsamlega bræddi alla í krignum sig í Berlínarferðinni okkar og í tékkalandi. Hann kann að blikka augunum og svo brosir hann út að eyrum og horfir alveg í augun á gömlukosnunum þannig að við vorum með óteljandi aðdáendur á hælnum út úm alla Evrópu. Hann kann þetta litli sjarmurinn.

Áróra er orðin spennt að byrja í 1. a og erum við búnar að kaupa pennaveski og hún búin að fá smá skólaföt þannig að hún er klár í slaginn. Hún elskar danskt sumar, tína epli, safna flugum og skottast um á hjólinu eða leika úti í sundlauginni sem er alveg mesta sportið.

Ég tók mig líka til og seldi ungbarnadótið hans Árna Hrafns og kubbana hennar Áróru um daginn. Og fyrir ágóðan náði ég að kaupa æðislegan plastkofa í garðinn sem bæði börnin hafa reyndar brjálæðislega gaman af, sandkassa og bíl. Og meira segja er afgangur upp í trampólín sem við erum að skoða. Þannig að dótið sem þau voru hætt að nota var bara hreinlega updatað upp í eitthvað sem þau nota. Og eru allir rosa glaðir með þessi skipti.

En já það var æði hjá okkur Berlín og fór vel um okkur í íbúðinni hjá Gísla og Helgu þótt þeirra hafi verið sárt saknað. Við gerðum margt skemmtilegt, skoðuðum söfn, fórum á útimarkaði, röltum miðbæinn, keyrðum um og fleira. Við ákvaðum svo að kella okkur til Tékklands í eina nótt og gistum í Prag og skoðuðum borgina þar aðeins. Síðan héldum við til Zdenecks vinar Halls og hans fjölskyldu sem buðu okkur í mat og var það  frábær upplifun.

Tengdó koma svo morgun og er sko mikil tilhlökkun.

Bestu kveðjur Steinunn

2 ár á danskri grundu

22. júní 2009 klukkan 17:14
Já á morgun eru liðin tvö ár frá því að við lentum með norrænu í Hanstolm og keyrðum þaðan inn í Horsens. Finnst reyndar að þetta hafi gerst í gær allt saman en engu að síður ótrúlega mikið búið að gerast á þessum tveimur árum. Þá sérstaklega á Íslandi reyndar. Jihh hvað mér finnst þetta ömurlegt allt saman núna, finnst staðan eitthvað ákaflega vonlaus og líkurnar á að við getum flutt heim finnast mér alltaf minnka. En við stefnum heim og okkur langar heim þannig að það er bara spurning um hvenær;) Þangað til reyni ég að sannfæra ektamanninn um að Dubai sé staðurinn fyrir praktík á næsta ári.

En ég var að mæla litla gaurinn okkar og hann er orðinn 9,4 kg og 74 cm.

Hann er einnig farinn að segja Mamma, pabí, Áa (Áróra) og dagg (takk). Hann talar stanslaust í símann og finnst það voða fyndið.
 
Áróra hins vegar saðgi hættu útí hið óendanlega 8 mánaða, og æji og nei. 10 mánaða sagði hún mamma, babba, dudda, anna, amma, audu (Auður). 12 mánaða Kahetta = hvað er þetta, og ljósi (ljósið).

Ég fór að bera saman þyngdartöflurnar hennar Áróru og Krumma og vá smá munur:

                      Áróra                  Árni Hrafn
Við fæðingu      52 cm 3570 g      54 cm 3900 g
1 mánaða        55 cm 4250 g      59 cm 4700 g
2 mánaða        61 cm 5050 g      60 cm 5600 g
3 mánaða        64 cm 5680 g      63 cm 6300 g
4 mánaða        65 cm 6055 g      66 cm 7250 g
5 mánaða        66,5 c 6415 g      68,5 c 7700 g
6 mánaða        68 cm 7040 g     
7 mánaða                                 70,4 c 8200 g
8 mánaða        72 cm 7577 g      71,5 c 8700 g
9 mánaða        73 cm 7880 g      73,2 c 8800 g
10 mánaða      74 cm 8170 g      74 cm 9400 g
12 mánaða      76 cm 8510 g
18 mánaða      82 cm 9820 g
2 ára              86,5 c 10100 g
3 ára              93 cm 13000 g
4 ára              101, 7 cm 15500 g
5 ára              118 cm 18900 g

Semsagt engan vegin sama uppskriftin en frábær börn bæði tvö;;)

Annað var það ekki::=)

Nýjar myndir

14. júní 2009 klukkan 19:01
það eru nýjar myndir og haugur af þeim, Elstu eru í febrúar albúminu, Góða skemmtun:)

*Einhverjar myndir voru litlar en ég held að ég sé búin að laga þær allar.  Kv. Steinunn

Það er þá loksins að maður hefur sig í skriftir;)

05. júní 2009 klukkan 10:45
Jæja kominn júní og eingin mai færsla eins og ég hafði lofað, sorry, ætla að reyna að halda mig við það að skrifa einu sinni í mánuði og það gengur vonandi betur næst, haha.

Og hvar á að byrja, hmmmm, ótrúlega margt hefur gerst hér eins og svo oft áður. Tengdó voru hér í heimsókn um páskana og var það bara æðilslegt, sérstakelga því öll systkini Halls voru samankomin. Þetta var nú frakar mikil kreppuferð, í þeim skilningi og ókeypisafþreying var mikið stunduð, og nóg er af henni ef maður bara leitar eftri því. Það var farið í bambagarðinn, strútabúið, Bygholm park, spilað og fleira skemmtielgt.

Árni Hrafn er nú að verða 10 mánaða en 9 mánaða lærði hann að segja mamma loksins og að klappa, það var nú kannski mesta afrekið því fam af því ef maður klappaði og söng klappa saman lófunum, þá sýndi hann hvað hann var stór, vinkaði og dansaði í einu, þetta krútt. Hann mældis 8,6 kg og 73,2 cm 9 mánaða. Hann dafnar vel. Er enn á brjósti og borðar vel og allt. Hann vill helst borða sjálfur og verður seint talinn sá snyrtilegasta í bransanum. Hann labbar mikið meðfram núna og stendur einn í örfáar sekúndur en er ekkert á leiðinni að labba neitt, sem betur fer svei mér þá. Hann er brosmildur með eindæmum og þegar hann vaknar heyrist oft kallað "mammma" og þá stendur kátur lítill kall tilbúinn í daginn. Hann er svoltíl skræfa og þar ólíkur systur sinni og er til dæmis enginn ofurhejta í ungabarnasundinu sem við erum by the way hætt í. Honum hefur ávallt þótt meira gaman í sturtuni á undan. Hann er knús kall mikill og kyssir endalust útí loftið og gefur manni knús. Tennurnar eru ennþá bara 6. Hann leikur sér nánast ekkert með dótið sitt en getur endaluast fiktað í ryksugunni og moppunni og skríður um öll gólf með sleif í hönd. Annars samkjaftar hann ekki á sínu eiginmáli og elskar stóru systur og önnur börn.

Stóra systir er í þessum skrifuðu orðum einmitt í 2 daga sumarbústaðaferð með skátunum. Hún er núna bara í skátunum og fílar það vel. Henni finnst þetta allt rosa gaman. Það er gaman hjá henni líka í skólanum. Og þar gengur henni bara nokkuð vel. Hún er vel læs bæði á íslensku og á dönsku og jafn víg þar sennilegast. Hún á enn erfitt með að ganga frá eftir sig og að byrja á einum hlut í einu segir Tine kennarinn hennar og svo kom hún illa út úr könnun í skólanum í að segja hvað hlutirnar heita. Orðaforðinn hennar er takmarkaður á dönsku og eðilegt að hún noti ekki orð eins og mál um bolla. En prófið var á slíkum nótum skils mér. Tine sagði þetta ekkert til að hafa áhyggjur af. Hún er glöð með leikfélagana í hverfinu og á nokkrar vinkonur sem hún leikur mikið við. Aron Blær  vinur hennar hér við hliðina á var hins vegar að flytja heim til Íslands og verður hans sárt saknað. Kagnannroline vinkona áróru á móti er búin að vera að passa hund og hafa þær stöllur dirfið sig út kl. hálf átta á morgnana til að fara með hundinn i göngutúr. Áróra elskar dýr og það gerir bróðir hennar líka, hann hlær og skríkir þegar Olly hundurinn kemur í heimsókn.

Sorgarfréttir urðu hér er Felix okkar elskaði rauðhærði köttur varð fyrir bíl hér ofar í götunni og lét lífið. Áróra var í g0ngu túr um morguninn með bekknum þegar þau ganga upp að kattarhræinu, hún var nú nokkuð viss um að þetta hefði verið Felix svo að kennarinn hreingdi heim, það passaði Hallur kom heim og gróf holu í garðinum og sótti Áróru snemma og var haldin hér jarðarför með mörgum tárum. Minning um barnbesta kött lifir.

Ég er búin í skólanum mínum og gekk bara ágætlega, fékk 8 í fjölmenningarlegum kennsluháttum og 7 í aðferðarfræði sem ég er bara sátt við, á svo eitt verkefni eftir í 3 kúrsinum sem að ég geri við tækifæri. Ég er búin að sækja um haug af vinnum í haust en fá svör fengið. En það er alltaf plan B, fullt nám í fjarnámia í haust og námslán. Árni Hrafn er alla vegana búinn að fá inn á vöggustofu hér í Egebjerg frá 1. sept, frábær 15 barna vöggustofa í göngufæri.

Halli gengur vel líka, hefur hins vegar mestann áhuga á golfi núna, var að byrja í nýjum golfklúbbu, stensballe golgklúbbi sem er glænýr 36 holu völlur og þar eyðir hann frítima sínum. Hann er alltaf að vinna í hatting á laugardögum sem er alveg frábært en margir hafa verið að hafa áhyggjur af okkur hérna úti en engin þörf er á því við höfum það sko mjög fínt. Ætlum til Berlínar í sumar og jafnvel línu langsokk garðinn fyrst. Erum nýkomin úr geggjaðri útilegu og erum á leiðinni til köben um helgina þannig að við höfum það sko fínt.

Áróra var búin að panta að fara ein heim í sumar og jafnvel að það verði úr að það verði á meðan við förum til bBErlínar, eiginelga eini tíminn sem hentar. Hún er líka mikið spenntari fyrir Íslandi en Berlín, spurning hvort við sendum hana heim 2. júlí. Og hún veðrði í ca. 2 vikur.

Einhvjerjar heimsóknir fáum við í sumar, en vala systr er að spá í helginni 14 -21 júli, pabbi og co þar á eftir sennilega og tengdó alveg í blálokin á júlí, byrjun ágúst. Mamma jafnvel eftir það. Og Tóta og Aggi svoí sept::)

Við ætluðum að fara öll til Íslands í byrjun ágúst en ætlum að skoða það aðeins. Hallur ætlar alla vegna heim að veiða og ég hefði nú viljað koma með Árna Hrafn en það er dýrt að fara og svona og kannski þarf ég að fara aftur ef ég fer í full nám og þarf heim í staðlotu. Skoðum þetta síðar.

Annars styttsit í afælmið hans Árna Hrafns og erum við eiginelga þegar komin með drög af afmælisgjöfum fyrir hann. Við erum að gera hér voða fínan pall og það væri gaman að hann fengi eitthvað dót á pallinn, sandkassa, eða því um líkt okkur langar að gefa honum plastkofa og gera það bara bráðlega og svo fær hann þá bara einhvern pínu pakka á afæmlinu, þannig að ef einhvern langar að gleðja hann með dóti á pallinn værum við voða glöð. EIns langar mig líka að hann fái dökkbrúnt 66  n flíssett, bucur, peysu, húfu og vettlinga og tilvalið að nokkrir skipti því á milli sín:)

Annars er hér á stefnuskránni að vera svoltíð dugleg að nota tjaldið sem við keyptum okkur um daginn og fara í útilegur og dýragarðarnir verða stundaðir af krafti í sumar. Árskort í lego og djurs verður sennilega látið eiga sig ár.

Matjurta ræktun er mikið stunduð hér á pallinum, komið eplatré, kál, tómataplöntur, chili, agúrku, papriku, jaðraberja og graskerplöntur ásamt kryddjurtum ýmiskonar, við erum því að verða sjálfbær í grænmeti.

Annars já bara allir hressir, fékk reyndar einhverja brjóstastíflu sem er í rénum og gubbupest og flensa búin að herja mannskapinn, það er búið og nú ekkert að gera annað en að njóta veðursins í Danmörkunni.

Þangað til næst::) Getum reyndar alveg hugsað okkur að leiga íbúðina okkar í hálfan mánuð frá: 28. júní til 13. júlí ef þið vitum um einhvern: =)

Hilsen Steinunn

p.s Myndir koma ekki fyrr en í næstu viku

Apríl, páskar, amma og afi í heimsókn og endalaus veikindi

06. apríl 2009 klukkan 15:02

Jæja bæja sko!

Árni Hrafn er eiginlega búinn að vera veikur allan mánuðinn, ég sver það, síðustu 3 vikur hefur hann verið veikur. Hann er núna í dag í 3 skiptið með gubbupest og er á pensílin skammti nr 2 við eyrnabólgu. Hann er lystarlítill, ælir, með niðurgang, sveppabrunninn, eftir pensilínið, kominn með þrusku í munninn (sem vonandi leuðir ekki út í brjóstinn, plí plís plís) og hefur ekki sofið heila nótt síðan hann varð veikur. Svefnleysið er gjörsamlega að ganga fram af okkur foreldrum hans því hann vakanar á klukkutíma fresti allar nætur til að súpa og þess á milli grenjar hann grenjar. Ég sé um mjólkurgjöfina en Hallur um grenjið. Gott plan:)

En amma og afi og Auður Lóa komu í gær, þrátt fyrir hrakfarir á leiðinni hingað vegna 2x bilaðrar lestar, og er sko mikil gleði. Ég hélt að Áróra myndi fara á yfirsnúning úr spenningi. Árni Hrafn er líka glaður og kátur með alla þessa athygli og elskar alveg að láta knúsast í sér:) Áróra sér ekki sólina fyrir Auði sinni og knúsar ömmu og afa þess á milli.

Árni Hrafn fékk á sjö mánaða afmælinu sínu fyrstu tönina og núna tæpum mánuði síðar eru þær oðrnar 6 stk. Það hjálpar nú ekki til í veikindum. Hann stóð líka upp fyrir um hálfum mánuði og labbar aðeins með, ekki mikið samt. Loksins er hann líka farinn að velta sér yfir af baki yfir á maga af ráði, því skondið hann löngu farinn að skríða og allt en um leið og hann datt á magann var hann eins og skjaldbaka, koms ekki neitt.

Já já svona er það nú! Amma og afi verða hér þar til á páska sunnudag, og Gulli og Hannes koma svo hingað líka fyrir helgi og verður þá stuð hér með allri femmunni;;)

Annars hendi ég inn myndum þegar ég hef tíma, veikindi, verkefnaskil og heimsóknir taka nefnilega sinn tíma en í hjáverkum smíðar Hallur pall og í gær voru settar upp ægilegar rólur handa barnaskararnum;;)

Veikindakveðjur
Steinka

Mars

03. mars 2009 klukkan 11:16
Ætli það sé ekki bara góður díll að henda inn myndum og einni færslu í byrjun hvers mánaðar. Ekki eru nú margi sem kvitta þannig að ekki geta það verið margir sem lesa en engu að síður mikilvægt fyrir að minnsta kosti ömmur og afa að geta fylgst með barnabörnunum sínum.

Ég er líka að hugsa um að skrifa hér hjá mér upplýsingar sem ég vil ekki að gleymast um börnin, því svo virðist sem ég fari alltaf á flug þegar ég byrja að skirfa hérna. Þannig að fyrir flesta koma hér helst til of mikil smáatriði, lesið bara fram hjá þeim þá;;)

Jæja. Árni Hraf verðu 7 mánaða í næstu viku og um hálfur mánuður síðan hann byrjaði að skríða. Hann byrjaði fyrst að mjaka sér á maganum rétt fyrir 6 mánaða og fór svo að fara í hringi og aftur á bak en svo upp úr 6 mánaða fór að koma einhver mynd á þetta. Hann reyndar þýtur um allt sitjandi en fer á hnén stundum. Hann fer alveg úr sitjandi stellingu niður á magann og upp aftur sitjandi á 0,1, en hins vegar er hann eiginlega alveg fastur ef hann lendir á bakinu, Hann á bágt með að snúa sér þaðan. Hann er farinn að standa aðeins upp. En ekki af neinu ráði samt, það er meira svona tilfallandi. Hann stendur upp við sjónvarpsborðið en á það til að detta og þá er fallið hátt svo hann er passasamur. Stendur samt alltaf upp í baðinu og í sófanum og á svoleíðist stöðum.

Hann er voða góður og glaður alltaf. Hefur alveg ofan af fyrir sér sjálfum núna, agalega gaman að skoða heiminn. Hann elskar að tæta matreiðslubækurnar úr skápnum og rífa tímarit upp úr körfum. Við dótið nennir hann lítið að leika. Svo er hann sérlegur áhugamður um ryksugur og moppur. Hann gjörsamlega elskar Felix og gargar AHHH þegar hann gerir heiðarlega tilraun til að rífa af honum allt hárið og matinn hann elskar hann. Felix þarf því að borða matinn sinn ofan af kommóðu.

Krummi er allur í partýtrikkunum þessa dagana. Hann er búinn að læra að gera "hvað ertu stór", vinka, "gera krútt" en þá fettir hann upp á nefið og blæs hratt og hátt út um nefnið, og kyssa, en þá gerir hann loft koss. Algjör kútur, og ægilega rogginn með sig;)

Hann borðar vel, á morgnanna fær hann sér hafragraut eða lífrænan ungabarnagraut, blandaða við duftmjólk, stundum tening af maukuðu grænmeti með. Hörfræolíu, járn og d- vítamindropa. Og vatnssopa.

Í hádeginu fær hann sér grófan líffrænan hrísmjölsgraut eða maismjölsgraut með maukuðu heimatilbúnugrænmeti, hörfræolíu og vatn

Í kaffinu fær hann sér heimatilbúið ávaxtamauk eða ferksan ávöxt í dúsuna.

Á kvöldin er svo annars slags grautur en í hádeginu en meira af grænmeti, olía og vatn. Hann týnir líka upp í sig seríósi á meðan hann bíður eftir matnum.

Hann drekkur en vel brjóst, á morgnanna þegar hann vaknar, fyrir fyrri lúrinn kl. 10. og fyrir seinni lúrinn kl 13. Og svo um kaffileytið. Og loks áður en hann fer að sofa. Hann vaknar oftast kl. 11  til að drekka og aftur kl. 3 og stundum kl. 6. En síðustu daga hefur hann vaknað á klukkutímafresti alla nóttina. Það eru samt undantekningarnar.

Honum finnst voða gaman í ungbarnasundinu núna, er svona fyrst fyrir alvöru núna að fatta að fýla það. Hann er samt svo mikil skræfa að hann er ekki njóta sín í botn neitt. Honum finnst líka gaman í ungabarnaleikfiminni og í mömmuklúbbnum, hann hefur voðalega gaman af örðum börnum, sérstaklega stórusystur þó.

Áróra er hress. Hún skipti um bekk núna eftir vetrarfríið. Og það hefur gengið rosa vel. Hún er farin að leita sér að einhverjum föstum félögum og vonandi kemur það sem fyrst. Hún leikur mjög mikið með karoline á móti, og talar mikið um nokkrar danskar í skólanum og leikur mest með þeim íslensku held ég.

Hún er núna í street funk danski einhverjum, sem henni finnst rosa skemmtilegur. Það er niðrí líkamsræktarstöðinni minni og á sama tíma og ég fer í pallatíma þannig að við förum þangað saman á mánudögum. Svo er hún byrjuð í skátunum og finnst það svona líka geðveikt. Alveg eitthvað fyrir hana reyndar. Svo eru það fimleikarnir, og held ég að það sé syning hjá þeim næsta sunnudag og svo aftur í vikunni eftir það. Spennandi. Karoline er líka með henni svo í balletinum og hefur hún ekki smá gott af þeim tímum. Eldri alvöru ballerína sem spilar klassíska píanótónlist af fullum krafti og temur þeim fágaðar hreyfingar. Já mikið gott nám fyrir hana.

Annars gengur henni bara vel í lífinu núna. Hún er í góðu jafnvægi og er að þroskast mikið. Hún las fyrir mig um daginn tvær danskar bækur þannig að hún virðist vera jafnvíg í lestri á báðum tungumálum. Hún reyndar skrifar mikið á íslensku og hljóðar sig í gegnum það en getur ekki notað sömu aðferð í dönskunni og það vefst svolítið fyrir henni.

Við mæðgurnar horfðum saman á Narniu hér á sunnudagskvöldið, og eins og flestir vita þá er hún ákaflega lítil sjónvarpsmanneskja, en hún gjörsamlega datt inn í Narniu og allt kvöldið á meðan hún var að sofan heyrðis "mamma, vissu krakkarnir ekki að gamli maðurnn væri líka ljónið?" " en mamma var ekki gamla konan þá nornin?" Alveg að spá í þessu.

Annars er bara allt búið að vera með besta móti svo sem hér. Mér gengur reyndar illa að samræma skólann inn í rútínuna, það fer mikill tími í börnin og heimilið og það reynist mér erfitt að kúpla mg út úr því pg gefa mér 100% tíma einhvern tímann. En við sjáum til.

Við fórum með vinafólki okkar í sumarbústað um daginn og það var alveg frábært, fórum á Skagen og til Álaborgar og í dýragarðinn þar. Rosa gaman. Áróra var eins og ljós allan tímann reydnar Krummi líka;) Svo er búið að vera hér festelavn, og öskudagsskemmtun íslendingafélagsins og þannig að mikið búið að vera um hátiðarhöld. Við nágrannarnir hér í gl. Kirkevej erum með mánaðarlegan matarklúbb þar sem ákveðið land er tekið fyrir sem þema í hvert skipti. Nú síðast hér hjá okkur var mexíkóskt, rosa gaman.

Gísli og Helga komu við um daginn, æðislegt að fá þau. Þau voru rosa hress og var mikið spilað hér á hverju kvöldi. Gísli tók svo ógrynni af myndum af krökkunum sem að ég er að setja inn, það sést vel hvaða myndir eru hans því gæðin eru svona 1000% betri, hahha.

Hallur er hress líka, fer í fótbolta á mánudögum og reynir að fara svo alla vegana einu sinni í viku í golf. Hann er alltaf í Hatting á laugardagsmorgnum og stendur sig annars vel í heimilshaldinu þess á milli. Nú hefur hann tekið að sér að elda matinn 3x í viku þegar ég er á æfingu og ekki vefst það fyrir mínum manni;)

Jæja ég hlýt að fara að verða búin með stafakvótann á bloggar.is, svolítið löng færsla:)

Þangað til næst. Eigið góðan mánuð. Við ætlum alla vegna að gera, og erum við sértaklega upptekinn þenna mánuð við að skipuleggja sumarfríið okkar, erum að spá í Evrópureisu;;)

Kominn febrúar

03. febrúar 2009 klukkan 08:31


Nýjar myndir frá janúar. Allir hressir. Lillinn farinn að mjaka sér á maganum, hann verður líka 6 mánaða í næstu viku;). Hann er líka farinn að borða eins og herforingi og sefur núna 2 langa dúra á dag, einn stuttan og sofnar kl. 8. Áróra skiptir um bekk í næstu viku. Hún Tine 0.a kennari langar svo að fá hana nefnilega í sinn bekk. Svo verða þær líka 3 íslensku að fara slíta strenginn sín á milli. Hún er annars dugleg bara gengur vel en á erfitt með að ganga frá eftir sig ennþá. Og erfitt með að borða matpakkann sinn. En hún er að reyna. Hún er líka að smíða dúkkurúm núna. Svo á morgun verður frumsýnd leyndardómsfyllsta sýning allra tíma. Áróra er búin að vera æfa cirkus leiksýningu núna í langan tíma og fáum við að sjá afraksturinn á morgun. Hallur er í fríi þessa viku. Ég er á fullu að læra þessa viku og svo á laugardaginn fórum við í sumarbústað með 2 öðrum pörum og 2 börnum. Verðum á miðja vegu á milli Skagen og Álaborgar og á meðal annars að skoða skagen og dýragarð. Gísli frændi móðurbróðir og Helga Clara konan hans eru á leið núna til okkar með rútu frá Berlín, ekki nema 9 tímar takk fyrir. Það verður æðist að hitta þau aðeins.

Annars bara allt eins og það á að vera;;)

Kv. Steinka

Góðan daginn allan daginn;;)

17. janúar 2009 klukkan 12:40
Gleðilegt nýtt ár og svona;)


                    Krummi og Siggi Kalli hressir

Það er loksins að maður hefur sig í einhverjar skriftir. Allt og ekkert að frétta héðan svo sem. Hæst ber þó að Hallur er búinn í prófinu sínu og gekk ágætlega. Hann er núna í valfagi í skólanum, aríktúrsáfanga einhverjum og hefur bæði gagn og gaman að.

Dagarnir fyrir próf hjá Halli voru ansi strembnir og kom Hallur lítið heim á milli. Allir voru því orðnir dauðþreyttir eftir prófið að kærkomið fríi sem var nú reyndar ekki nema einn og hálfur sólarhringur.

Áróra mín er alltaf jafn orkufrek og jafnast hún eiginlega á við svona 4 ungabörn. Ég hef verið með hana í sjónvarpsbúðum, það er að reyna að pína hana til að horfa á sjónvarpið. Það fer lítið fyrir því, hún nennir þó að horfa á í smástund á morgnana. Og ekki unir hún sér ein í leik heldur. Þannig að ef hún hefur ekki einhvern að leika er hún eins og fellibylur hér heima, og setningar eins og mér leiðist og ohh afhverju má ég aldrei neitt á repeat allan daginn. Hún er mjög skapandi og ætti að eiga heima á listaheimili ekki hjá frekar þreyttri móður sem bara nennir ekki að þrífa gifs af borðum eða að búa til enn einn skammtinn af trölladeigi. Hún er dugleg í að sauma og er að sauma núna í höndunum pils handa Ellu ömmu sinni. Ég ætla að setja saumavélina upp fyrir hana í dag og kannski unir hún sér eitthvað þar blessunin. Annars er spurning um að kenna henni að prjóna, ég lærða að prjóna 6 ára þannig að hún ætti nú að geta það.


                                        Perluvinir

Lillinn er bara hress, hann er orðinn 5 mánaða og viku betur meira að segja. Á 5 mánaða afmælinu sínu fékk hann grautarsmakk í fyrsta sinn. Honum þykir hann nú ekki sérstakur, og ekki kann hann að kyngja þannig að þetta flýtur út úr honum jafn fljótt aftur. En þetta er að koma, honum þykur reyndar betra að fá grautinn útþynntan og drekka hann úr glasi. Hann fór í viktun í fyrradag. Hann er nú orðinn 7.8 kg og 69 cm. Læknirinn horfði á litla hlunkinn og spurði á hvaða fæði hann væri eiginlega. Ég, bara brjósti sko. Já þú hlýtur að vera full af orku þá svarar læknirinn. En málið er að ég er það ekki lengur. Hann er farinn að taka svolítið frá mér, og bara núna á síðustu vikunum. Ég er gjörsamlega orkulaus í alla staði, treð í mig kóki og nammi til að vinna upp einhverja smá skamtímaorku sem gerir mig auðvitað bara þreyttari. Hann er líka farinn að vakna oftar upp á nóttinni núna. Og svo sofnar hann ekki fyrr en í fyrstalagi k.23 þannig að þetta er ekki alveg að gera sig. En þegar hann verður farinn að borða betur fer þetta örugglega allt að koma. Hann er alla vegna farinn að sofa 2 góða lúra útí vagni, loksins;) Og þá fyrsti strax eftir graut. Og ég þyrfti að komast í svona viku afréttingu hjá ömmu Steinsí í hollum og góðum mat til að ná að rétta mig við.


 Áróra skilur ekki afhverju við fáum okkur ekki alla vegna 2 börn í viðbót

Áróra er annars að fara til hjúkkunnar í skólanum sínum í fyrramálið í viktun, mælingu, heyrnarmælingu og sjonpróf og svona. Ekki veitir af heyrnarmælingunni þvi hún segir ekkert annað en ha þessa dagana, held reydnar að hún eigi alltaf erfiðara með að skilja, nú séu málin farin að rugla hana. Við mældum og viktuðum hana reyndar í síðustu viku og er hún 19,7 kg og 120.8 cm. Hún er enn á fullu í ballet og fimleikum og ætla ég að leyfa henni að fara í dans líka á mánudögum ef hún fílar það. Hún hefur bilaða orku sem hún veit ekkert hvað á að gera við þannig að það er kannski best að hafa hana bara nógu upptekna. Þess á milli reyni ég að setja hana í slökun og bombubað með kertaljós og eitthvað við lítinn árángur. En ég ætla að reyna að koma henni heim í kannski viku hálfan mánuð næsta sumar á eitthvað námskeið, svo hún haldi við íslenskunni og svona. Hún hefur gott af því, líka svo hún myndi einhver félagatengsl sem hún getur haldið í þar til við komum til baka, hafið það í huga ömmur og afar og okkur þætti það æðis ef þið sjáið fram á einvherja smugu með það.

Annars eigum við von á heimsóknum, víbbý;;) Amma og afi í Hamrahlíð og Ausan okkar eru að spá í að koma kannsk í apríl og Amma Stella og amma Bína eru á höttunum eftir tilboðsferð hingað;;)


                                    Mótorhjólagæjar

Skólinn minn er annars byrjaður og fer lítið fyrir mikilli námsframvindu, ég er enn að bíða eftir einvherjum bókum til að byrja, bæði er mamma og kaupa og redda fyirr mig bókum að heiman og ég var búin að panta af bókasafninu hér. Þannig að það fer nú ekki mikið fyrir neinu núna, og bið ég fólk að gera sér ekki og miklar væntingar með þetta hjá mér, ég ætla algjörlega að sjá til hvað ég get. Strákurinn er auðvitað heima hjá mér og tekur mestan minn tíma, og ekki útlit fyrir að hann komist í vistun fyrr en í haust þannig að þetta kemur bara í ljós, ég prófa þetta og finnst gaman af þessu alla vegana hingað til. Ég er skráð í 3 námskeið, aðferðafræði menntarannsókna, íslenska sem annað mál og fjölmenning á íslandi. Þetta er því fullt nám en það ræðst á næstu dögum hvort ég komi til með halda áfram í þeim öllum.

Jæja ritgerð dagsins komin á blað, vonandi að Hallur fari að koma heim bráðum úr vinnu því að hér er annasöm helgi framundan, kveðjupartý, afmæli, unglingaklúbbur;)

Myndir koma einhvern tímann, þurfti að fjárfesta í nýrri tölvu fyrir skólann og nema hvað hún er gölluð og ég fæ nýja á mánudaginn þannig að ég nenni engu myndastússu fyrr en tölvmál eru komin á hreint.

Bestu kveðjur
Steinunn

p.s - stal nokkrum myndum frá Bertu til að setja hér inn, takk Berta;;)

Klukkan

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Steinunn, Hallur og Áróra
  • Staður: 8700 Horsens
  • Heimilisfang: Gl. Kirkevej 8N
  • Um mig: Símanúmer hjá okkur: Íslenski netsíminn: 496-0348 Hallur: 0045-2679-5819 Steinunn: 0045-6015-8409

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...